Markaðssetning á Netinu

Í stórauknum mæli eru fyrirtæki farin að nýta sér internetið til að selja vörur sínar og þjónustu og til að kynna sína starfsemi.

Mjög mikilvægur þáttur í svona markaðssetningu er að nota leitarvélarnar á netinu og má stórauka árangur sölu- og markaðsmála með notkun þeirra ef þær eru notaðar rétt. HVH býður viðskiptavinum sínum þjónustu í hvað varðar leitarvélabestun (CEO), þarfagreiningar, vefhönnun og ráðgjöf, útsendingar rafrænna markpósta svo eitthvað sé nefnt.

 

Netið

Í nútímasamfélagi er Netið einn helsti vettvangur samskipta. Góð vefsíða er bráðnauðsynleg hverju því fyrirtæki sem vill koma starfsemi sinni á framfæri. Vefsíðan vinnur fyrir þig á Netinu allan sólarhringinn og kynnir fyrirtækið þitt fyrir heiminum. Hér skiptir hraði og gæði miklu máli. Samkvæmt Hagstofu Íslands (2010), þá eru 92% Íslendinga tengdir við Netið og góð vefsíða eykur möguleika þína á að kynna þig og fyrirtækið þitt fyrir almenningi.

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

You may use these HTML tags and attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>